Vegurinn yfir Holtavörðuheiði er lokaður sem stendur en þar er bíll sem lokar veginum. Á vef Vegagerðarinnar segir að unnið sé að því að losa bílinn en þó sé óvíst hvenær tekst að opna fyrir umferð aftur. Annars er snjóþekja, hálka eða hálkublettir víðast hvar á Norðurlandi en allir helstu vegir færir en ófært er þó á Víkurskarði. #færðin

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:
Sunnan 3-10 m/s og dálítil rigning eða slydda af og til, einkum V-ast, en bjartviðri á N- og A-landi. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost austantil.

Á föstudag:
Hæg austlæg eða breytileg átt og léttskýjað, en skýjað með köflum um landið norðaustanvert. Hiti breytist lítið.

Á laugardag, sunnudag og mánudag:
Fremur hæg austlæg átt. Skýjað og yfirleitt þurrt austantil, en annars bjartviðri eða léttskýjað. Hiti víða 0 til 5 stig að deginum.

 

Fréttin uppfærð kl. 10:55. Holtavörðuheiði hefur verið opnuð fyrir umferð.

 

Skjáskot: Vegagerðin