Danshátíðin í Hrísey var haldin í fyrsta sinn laugardaginn 17. ágúst í íþróttamiðstöðinni og er óhætt að segja að hún hafi tekist mjög vel. Tæplega 100 manns mættu og var mikið stuð frá kl. 17 og til miðnættis.

Þrjár hljómsveitir léku fyrir dansi, Hljómsveit Pálma Stefánssonar, Danshljómsveit Friðjóns og Trap.

Ingimar Ragnarsson, skipuleggjandi danshátíðarinnar sagði á hrisey.is:

Það sem stendur upp úr er hvað allir voru ánægðir með þetta framtak og er búið að ákveða að endurtaka leikinn á næsta ári. Það var ánægjulegt að sjá hvað mikið af fólki kom til þess að dansa og á næsta ári mun verða boðið upp á dansnámskeið í tengslum við hátíðina.

Ingimar vill þakka öllum þeim sem komu að skipulagningu og aðstoð við að gera þetta að veruleika.

Sjá einnig á hrisey.is