Hindberjabaka
Deig
- 125 g smjör
- 1 dl sykur
- 2 dl hveiti
- 1 msk vanillusykur
Fylling
- um 5 dl hindber, frosin eða fersk
- 1 msk kartöflumjöl
- 1 msk sykur
Hitið ofninn í 200°.
Setjið öll hráefnin í deigið saman í skál og vinnið saman með gaffli eða fingrunum þannig að úr verði mulningur
Blandið hindberjum, kartöflumjöli og sykri saman í annarri skál.
Smyrjið eldfast mót. Setjið hindberjablönduna í botninn og deigmulninginn yfir. Bakið við 200° í 25-35 mínútur, eða þar til bakan hefur fengið fallegan lit.
Berið bökuna fram heita með Mjúkís með pistasíuhnetum.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit