Þegar ljóst var að mikil þörf var á stórum rafstöðvum á Norðurlandi óskaði Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík eftir því að fá lánaða mjög stóra rafstöð hjá Grindavíkurbæ, sem notuð er til þess að keyra varafl inn á stofnanir bæjarins í neyð.

Vel var tekið í beiðnina og lagði sveitin því fljótlega af stað norður með þrjár rafstöðvar, þar af eina svo stóra að hún vegur 2 tonn.

Ákveðið var að senda hópinn innarlega í Svarfaðardal, þar var stóra rafstöðin tengd við stórt kúabú. Vel gekk að koma rafmagni á búið svo hægt var að mjólka og bjarga ábúendum frá frekara tjóni.

Því næst var farið með smærri stöðvarnar á aðra bæi og aðstoðað við að koma rafmagni þar á.

Eftir stutta hvíld aðstoðaði hópurinn svo starfsmenn Landsnets og Rarik við að berja ís af raflínum og reisa við brotna staura.

Þá fór einnig hópur frá Björgunarsveitinni norður til þess að aðstoða við leitina að unga piltinum sem fórst í Eyjafirði. Þar að auki var mannskapur í aðgerðarstjórn á Norðurlandi.

Núna er allur mannskapurinn kominn heim til Grindavíkur, en með góðfúslegu leyfi Grindavíkurbæjar er rafstöðin góða ennþá að framleiða rafmagn fyrir Dalvík og Svarfdælinga. Hún verður þar, þangað til raforkumál komast í lag aftur fyrir norðan.


Mynd: Björgunarsveitin Þorbjörn