Nú hefur undirbúningsteymið, sem sett var saman á Dalvík laugardaginn 14. desember, fundað með sveitarstjóra Dalvíkurbyggðar.

Í framhaldi af þeim fundi hefur verið ákveðið að halda samverustund í Menningarhúsinu Bergi í kvöld, mánudagskvöld, klukkan 19:30, þar sem íbúar byggðarlagsins, vilja almennt koma á framfæri þakklæti til allra þeirra fjölmörgu viðbragðsaðila sem unnu gríðarlega gott og óeigingjarnt starf, við oft á tíðum afar hættulegar og erfiðar aðstæður, er ofsaveður gekk hér yfir í vikunni sem leið.

Þessi stund er sérstaklega hugsuð sem ákveðinn stuðningur og hvatning, þakkæti og virðing til allra þeirra – og boðið verður upp á kaffi og hlaðborð veitinga af ýmsum toga.

Allir þeir aðilar sem vilja leggja þessu málefni lið með brauðmeti, kökum, tertum, smákökum, ostum, heitum réttum og hverju því sem hugnast geta skilað því af sér í Menningarhúsið til undirbúningshópsins í dag á milli kl. 18:00 og 19:00.

Mynd: Haukur Arnar Gunnarsson