Á aðalfundi KEA sem fram fór 22. apríl kom fram að 1.430 milljóna króna hagnaður varð af rekstri félagsins á síðasta ári. Hreinar fjárfestingatekjur voru 1.727 milljónir króna og hækkuðu um 670 milljónir króna á milli ára.
Eigið fé var tæpir 11 milljarðar og heildareignir námu tæplega 11,2 milljarði króna. Eiginfjárhlutfall var rúmlega 98%. Í samræmi við stefnu félagsins var eignasafn þess einfaldað á árinu, eignir seldar og verkefnum fækkað.
Verulega var aukið við vægi fasteignatengdra verkefna þegar dótturfélag KEA keypti 119 íbúðir á Akureyri af Íveru fyrir 5 milljarða. Var það fyrsta skrefið í því að byggja upp íbúðafélag sem leigir út íbúðir á almennum markaði.
Auk þess var fjárfest í stóru fasteignaþróunarverkefni við Viðjulund á Akureyri. Á árinu voru seldir eignarhlutir í Slippnum Akureyri, Norðurböðum og Íslenskum verðbréfum. Aukið var við hlut félagsins í Ferro zink og á KEA nú allt hlutafé félagsins. Jafnframt var hlutur félagsins í Norlandair aukinn og er nú 45% og er KEA stærsti eigandi félagsins.
Heilt yfir gekk félögum sem KEA á eignarhluti í vel í sínum rekstri. Áfram verður unnið í því að einfalda eignasafnið og fækka en um leið stækka þau verkefni sem félagið hefur með höndum.
Ný í aðalstjórn félagsins er Hafdís Erna Ásbjarnardóttir.