Á vef Vinnueftirlitsins kom fram að fimmtán ára starfsmaður Gámaþjónustu Norðurlands varð fyrir vinnuslysi þegar hann lenti ofan í pressugám á mótökusvæðinu við Réttarhvamm á Akureyri og þar segir meðal annars.

“Við eftirlitsheimsókn Vinnueftirlitsins í Gámaþjónustu Norðurlands ehf. að gámasvæði við Réttarhvamm á Akureyri, kom í ljós að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi starfsmanna var ekki í samræmi við lög og reglur. Börn og unglingar undir 18 ára voru að vinna á gámasvæðinu og hafði 15 ára starfsmaður verið að vinna við pressugám og lent í honum og orðið fyrir vinnuslysi.

Var öll vinna barna og unglinga undir 18 ára við pressugáma, við önnur hættuleg tæki og verkefni bönnuð. Einnig var vinna þeirra við hættuleg efni, við að handleika þungar byrgðar og án þess að starfa með fullorðnum starfsmönnum bönnuð, sbr. heimild í 85. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.

Vinnueftirlitið vill vekja athygli á því að öll alvarleg brot á reglugerð nr. 426/1999 um vinnu barna og unglinga eru kærð til lögreglu.”


Frétt og mynd: Kristín Sigurjónsdóttir