Matvælastofnun varar við neyslu á frosnum fiski frá Víetnam með vöruheitinu Redtail Tinfoil Barb vegna ólöglegs aðskotaefnis. Fyrirtækið Dai Phat sem flutti inn vöruna hefur innkallað allar framleiðslulotur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Aðskotaefnið malachite green sem er notað sem lyf í fiskiræktun er eitrað og krabbameinsvaldandi og er því ólöglegt.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF evrópska viðvörunarkerfið um hættuleg matvæli og fóður og gerði heilbrigðiseftirlitinu viðvart.
Innköllunin á við allar framleiðslulotur:
- Vöruheiti: Frozen Redtail Tinfoil Barb
- Lotunúmer: Allar best fyrir dagsetningar
- Strikamerki: 7350072778479
- Nettómagn: 850g
- Geymsluskilyrði: Frystivara
- Framleiðandi: Viet Asia Foods Co.
- Framleiðsluland: Víetnam
- Innflutningsfyrirtæki: Dai Phat Trading Inc. ehf. Faxafeni 14, 108 Reykjavík
- Dreifing: Dai Phat Trading Inc. ehf. Faxafeni 14, 108 Reykjavík