Samtals eru til ráðstöfunar í Fjallabyggð 318 tonn af byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2025, ríflega 41 tonn til Ólafsfjarðar og um 277 tonn til Siglufjarðar.

Fjallabyggð var gefinn frestur til 21. febrúar til að senda ráðuneytinu tillögur um sérreglur úthlutunar í sveitarfélaginu.

Bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna að gerð tillögu að sérreglum um úthlutun byggðakvóta fyrir 2024-2025 eins og erindi atvinnumálaráðuneytis gefur kost á.

Fyrir liggur tillaga um sérreglur sem gera ráð fyrir því að heimilt verði að landa afla innan sveitarfélagsins Fjallabyggðar óháð því í hvoru byggðarlagi bátur fær úthlutun. Jafnframt er lagt til að hámark úthlutunar verði ekki meiri en 90 þorskígildistonn á fiskiskip.

Tillaga um sérreglur gerir ráð fyrir því að fiskiskipum verði skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta innan sveitarfélagsins en að ekki sé skylt að landa til vinnslu innan sveitarfélagsins. Í því felst að afli sem boðinn er upp á fiskmarkaði innan sveitarfélagsins teljist uppfylla skilyrði um löndun innan sveitarfélagsins.

Tillögunni var vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar eftirfarandi óskum um sérreglur í reglugerð 819/2024 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2024/2025 til afgreiðslu í bæjarstjórn:

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr., c liðar 1. greinar breytist og verður:

Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi sveitarfélagi 1. júlí 2024.

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:

Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðalags á tímabilinu 1. september 2023 til 31. ágúst 2024, þó að hámarki 80 þorskígildistonn á fiskiskip.

Í 6. grein reglugerðarinnar verði veitt undanþága frá löndun til vinnslu.

Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: “Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta innan sveitarfélagsins. ” Önnur ákvæði sömu málsgr. breytist í samræmi.

Í 6.gr., 3. málsgr, breytist og verður: „Afli sem boðinn er upp á fiskmarkaði innan sveitarfélagsins telst uppfylla skilyrði um löndun innan sveitarfélagsins samkvæmt 1.málsgr.“

Fjallabyggð fær 3,4% af heildarúthlutun byggðakvóta
Athugasemdir hagsmunaaðila í Fjallabyggð vegna úthlutunar byggðakvóta