Þann 11. júní voru liðin 2 ár frá samþykki byggðaáætlunar 2018-2024. Sá dagur markaði upphaf ferlis endurskoðunar áætlunarinnar.
Af því tilefni boðaði samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra til samráðsfundar í Hafnarborg í Hafnarfirði þar sem farið var yfir stöðu byggðamála og samráð um endurskoðunina hófst.
Taka á saman grænbók um framkvæmd áætlunarinnar til þessa, hvað vel hefur gengið og hvað má betur fara. Á fundinum voru haldin fróðleg erindi sem tengjast byggðamálum og lýstu framkvæmdastjórar landshlutasamtakanna reynslu af byggðaáætluninni en mikið af þeim verkefnum sem þar er að finna hafa verið unnin í samstarfi við þau.
Í framhaldi af fundinum var opnað fyrir almennt samráð um endurskoðun þessa mikilvæga plaggs. Fólk er hvatt til að kynna sér áætlunina og gera athugasemdir.