Kjörskrá í Fjallabyggð vegna forsetakosninganna þann 27. júní 2020 liggur nú frammi til sýnis í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði, frá kl. 9:30-15:00 og mun liggja frammi alla virka daga fram til 27. júní.

Kjósendum er einnig bent á vefinn www.kosning.is en þar má finna hvar kjósendur eru á kjörskrá. Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskránni. Athugasemdum við kjörskrá skal beina til bæjarráðs Fjallabyggðar.

Kjörskrá var lögð fram á fundi bæjarstjórnar Fjallabyggðar fimmtudaginn 11. júní. Á kjörskrá í Fjallabyggð eru 1568. Á Siglufirði eru 951 á kjörskrá og í Ólafsfirði 617.

Nánari upplýsingar um forsetakosningarnar er að finna á vef stjórnarráðsins.