Alls voru 226.557 einstaklingar skráðir í þjóðkirkjuna þann 1. ágúst síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum einstaklingum í þjóðkirkjuna fækkað um 912 síðan 1. desember 2022. Næst fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 15.086 skráða meðlimi og í þriðja sæti yfir fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag er Fríkirkjan í Reykjavík með 9.951 skráða meðlimi.

Fjölgað mest í Siðmennt

Frá 1. desember 2022 til 1. ágúst 2023 hefur fjölgun meðlima í trú- og lífsskoðunarfélagi verið mest í Siðmennt eða um 302 meðlimi, sem er um 5,7% fjölgun en næst mest í Kaþólsku kirkjunni um 237 meðlimi. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá lífsskoðunarfélaginu Lífspekifélag Íslands, eða um 100%, en nú eru 58 meðlimir skráðir í félagið. 

Ótilgreint og utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 30.452 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga sem er 2,2% hækkun frá 1.des 2022. Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar. Alls voru 79.498 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu þá hefur hann ekki tekið afstöðu til skráningar í trú- eða lífsskoðunarfélag. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við tölur frá 1. desember 2020-2022.