Í ljósi aðstæðna og hertra takmarkana hafa Ljótu hálfvitarnir aflýst fyrirhugðu tónleikahaldi Verslunarmannahelgarinnar í Miðgarði í Skagafirði, Valaskjálf á Egilsstöðum og á Græna hattinum á Akureyri. Allir miðar verða endurgreiddir.
Það er að sjálfsögðu drullufúlt, en hitt væri enn verra segja Ljótu hálfvitarnir, að hjálpa veiruskrattanum að skjóta nýjum rótum.
Sjáumst aftur þegar rofar til á ný. Það má alveg hafa smá áhyggjur af því hvað það verður rosalegt segja þeir að lokum.