Fyrir lá erindi frá Elís Hólm Þórðarsyni, íbúa í Ólafsfirði á 880. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar.

Þar var komið á framfæri ábendingum varðandi forgangsröðun jarðgangagerðar á Tröllaskaga auk fyrirspurnar um þá forgangsröðun.

Bæjarráð bendir á ályktun sem samþykkt var í bæjarstjórn Fjallabyggðar þann 9.nóvember 2022.

Rannsóknarvinna og skipulagsvinna vegna Fljótaganga er komin vel á veg en nauðsynlegt er að tryggja jafnframt nú þegar fjármagn í frekari rannsóknir og hönnunarvinnu við jarðgöng á milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur.