Alls voru 51.249 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. nóvember 2020 og fækkaði þeim um 155 síðastliðinn mánuð. 

Á sama tíma fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru með skráða búsetu hér á landi um 136 einstaklinga.

Pólskum ríkisborgurum fækkaði á ofangreindu tímabili um 215 einstaklinga og rúmenskum ríkisborgurum fækkaði um 59.  Íröskum ríkisborgurum fjölgaði hins vegar um 19 einstaklinga. 

 Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2018 og  2019 og þann 1. október og 1. nóvember 2020. 
Þessar tölur eru byggðar á skráningu þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi.

Mynd/iStock