Eins og síðustu ár mun Fjallabyggð birta rafrænt yfirlit/dagatal yfir afþreyingu og frístundastarf barna og unglinga í Fjallabyggð sumarið 2024.

Þeir aðilar sem ráðgera að bjóða upp á afþreyingu eða aðra dagskrá fyrir börn og unglinga í sumar eru hvattir til að senda inn upplýsingar um það á eyðublaði sem aðgengilegt er hér eða á netfangið salka@fjallabyggd.is, sem einnig veitir frekari upplýsingar ef þörf krefur.

Með því verða upplýsingar um það sem er í boði til afþreyingar og dægrastyttingar fyrir þann aldurshóp aðgengilegar á einum stað á heimasíðu Fjallabyggðar.

Horft er til afþreyingar / námskeiða á sviði menningar, fræðslu, íþrótta o.s.frv. Hægt verður að bæta inn í yfirlitið eftir þann tíma en gott að hafa sem mest tilbúið við birtingu yfirlitsins.

Reglur um frístundastyrki Fjallabyggðar eru aðgengilega á vef sveitarfélagins. 

 Eyðublað