Fjallabyggð mun gefa út páskadagskrána Páskafjör fyrir páska, líkt og síðustu ár, þar sem taldir verða til viðburðir, opnunartímar verslana, safna, setra, gallería og stofnana, afþreying og önnur þjónusta dagana 6. – 10. apríl nk. 

Dagskránni verður dreift í Fjallabyggð, á heimasíðu Fjallabyggðar og á samfélagsmiðlum.

Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa viðburð,  opnunartíma, afþreyingu eða annað sem þeir hafa upp á að bjóða yfir páskana eru beðnir um að hafa samband við Lindu Leu Bogadóttur, markaðs- og menningarfulltrúa, með því að senda póst á lindalea@fjallabyggð eða hringja í síma 464-9100, fyrir miðvikudaginn 22 mars nk.