Eyfirski safnadagurinn fer fram á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 25. apríl. Viðburðurinn hóf göngu sína árið 2007 og hefur verið haldinn árlega síðan. Markmiðið er að vekja athygli á fjölda fróðlegra og forvitnilegra safna sem eru við Eyjafjörð. Enginn aðgangseyrir er að söfnunum á Eyfirska safnadeginum.
Í tilefni komu sumarsins munu 16 söfn og sýningar opna dyr sínar fyrir gestum og gangandi kl. 13-17. Þema dagsins í ár er: ferðalög.
Eftirtalin söfn verða opin á Eyfirska safnadaginn:
- Siglufjörður: Síldarminjasafn Íslands
- Dalvík og Svarfaðardalur: Byggðasafnið Hvoll
- Hrísey: Hús hákarla Jörundar
- Akureyri: Amtsbókasafnið á Akureyri (opið kl. 13-14), Davíðshús, Flugsafn Íslands, Iðnaðarsafnið á Akureyri, Leikfangasýningin Friðbjarnarhúsi, Listasafnið á Akureyri,
- Minjasafnið á Akureyri, Mótorhjólasafn Íslands, Nonnahús og Norðurslóð.
- Eyjafjarðarsveit: Smámunasafn Sverris Hermannssonar í Sólgarði.
- Grýtubakkahreppur: Gamli bærinn Laufás, Útgerðarminjasafnið á Grenivík.
Margt fróðlegt og skemmtilegt verður í boði á söfnunum þennan daginn!
Nánari upplýsingar um viðburði má sjá á facebook-síðu Safna og sýninga við Eyjafjörð.
Myllumerki Eyfirska safnadagsins er #eyfirski