Notendur Facebook og Instagram hafa átt í vandræðum með að tengjast samfélagsmiðlunum síðastliðna klukkustund.
Einnig hefur borið á truflunum á þjónustu Whatsapp og Messenger, allir miðlarnir eru í eigu Facebook.
Samkvæmt upplýingum frá Facebook virðist vandamálið aðallega vera í Norður-Ameríku og Evrópu, en einnig í Asíu.