Eining-Iðja vill minna félagsmenn á rétt sinn á að fá greidda orlofsuppbót/persónuuppbót, en það er föst fjárhæð sem atvinnurekendum er skylt að greiða starfsfólki sínu í maí/júní ár hvert. Uppbótin miðast við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, inniheldur orlof og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga. Áunna orlofsuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.
- Almennur vinnumarkaður – Orlofsuppbót er 52.000 kr. miðað við fullt starf og átti að greiðast 1. júní sl.
- Ríki – Orlofsuppbót er 52.000 kr. miðað við fullt starf og átti að greiðast 1. júní sl.
- Sveitarfélög – Persónuuppbót er 51.700 kr. miðað við fullt starf og átti að greiðast 1. maí sl.
Töflur sem sýna upphæð orlofsgreiðslu miðað við starfshlutfall og starfstíma
Sjá nánar í kjarasamningum viðkomandi aðila.
Mynd/aðsend