Það stefnir í skemmtilegan Þjóðhátíðardag í Húnaþingi vestra á Hvammstanga en búið er að setja saman fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa.

Dagskrá á þjóðhátíðardegi

13:00 – Þjóðhátíðarmessa í Hvammstangakirkju

14:00 – Skrúðganga hefst frá Hvammstangakirkju

14:30 – Ávarp fjallkonu og hátíðarræða á svölum Félagsheimilisins

15:00 – Skemmtidagskrá sunnan við Félagsheimilið

• 10. bekkur mun vera með sölu á grilluðum pylsum, sælgæti og candyfloss

• Hoppukastalar fyrir unga sem aldna

• Teymt undir börnum á hestum

• Léttar þrautir

• Andlitsmálun

Fögnum deginum saman