Félagsmiðstöð 60+ verður starfrækt á Hvammstanga í sumar.
Á fimmtudaginn var opið hús þar sem drög að dagskrá voru kynnt og boðið var upp á vöfflukaffi. Það er greinilega mikill áhugi á verkefninu og góðar hugmyndir að námskeiðum eða félagsstarfi komu fram, svo var hlustað á harmonikkuleik og sungið saman.
Í júlí og ágúst verður alltaf opið á miðvikudögum frá klukkan 14-16 í dreifnámsaðstöðunni á neðri hæð Félagsheimilisins á Hvammstanga. Þar verður hægt að fá sér kaffi, spjalla saman eða spila, fara í gönguferð eða taka þátt í námskeiðum. Einnig verður Henrike Wappler, félagsráðgjafi, á staðnum ef óskað er eftir ráðgjöf.
Stundum verður dagskrá á fleiri dögum eða öðrum stöðum eins og í íþróttahúsinu, á púttvelli eða í Nestúni og verður það auglýst sérstaklega. Alltaf verður heitt á könnunni á miðvikudögum.