Trölli.is birtir af og til gamlar fréttir af vefnum Siglo.is. Hér kemur frétt frá 20. apríl 2011, Guðmundur Skarphéðinsson ritaði fréttina og lagði til myndir.

Gistihúsið Hvanneyri Aðalgötu 10.

Miklar breytingar hafa verið gerðar á Hvanneyri síðustu 2 ár.  Byrjað var á að taka 1.hæðina í gegn og bætt var við 2 salernum og 2 sturtum og í þeim breytingum var hugsað um aðstöðu fyrir fatlaða.
Flísalagt var upp á nýtt og aðalinngangur hússins fluttur frá Vetrarbrautinni yfir á Aðalgötu. Nýtt og breytt aðgengi fyrir gesti og gangandi var nauðsynlegt þar sem engin móttaka var til staðar Vetrarbrautar-megin, en fínasta móttaka er komin upp Aðalgötu-megin.
4 hæðin var tekin í gegn í vetur og bætt var við baðherbergjum í 2 herbergjum. Einnig var sett upp 2 salerni og 2 sturtur.
Árið 2007 var farið í að breyta 2. hæðinni þannig að ágætlega stór matsalur er út frá eldhúsinu og þar við hliðina var sett upp setustofa eða koníakstofan eins og hún er kölluð. Þar áður var bara dýnugeymsla.
Svo hefur verið skipt um gólfefni hér og þar á tímanum 2007-2011. Alltaf virðist vera hægt að breyta og bæta.
Gistiheimilið býður upp á 23. herbergi, þar af 2 fjögurra manna, og 2 þriggja manna. Önnur herbergi eru tveggja manna”.

Þórður Andersen og Birgitta Pálsdóttir, eigendur Gistihússins

 

Setustofa

 

Koníakstofan

 

.

 

.

 

.

 

Í móttöku

 

.

 

.

 

.

 

Svítan

 

Svítan