Dalvíkurbyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Dalvíkurbyggð sem hafa áhuga á að vera með í að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins. 

Gjafabréfin virka sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Dalvíkurbyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Dalvíkurbyggðar gegn framvísun gjafabréfsins. Gert er ráð fyrir að gjafabréfin verði hægt að nota frá 3. desember 2020 til og með 15. janúar 2021.

Ef einhver fyrirtæki í byggðalaginu hafa áhuga á að vera með sérstök tilboð líkt og þau gerðu í tengslum við ferðagjöfina frá ríkinu þá mætti tilboðið gjarnan fylgja með og tilboðið mun þá verða sýnilegt á fyrirækjalistanum sem starfsmenn geta kynnt sér varðandi þau fyrirtæki sem verða með í ár.

Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að viðkomandi fyrirtæki sé skráð hjá hinu opinbera sem og starfandi í Dalvíkurbyggð. Skráningarfrestur er til 25. nóvember.

Skráning fer fram á netfanginu irish@dalvikurbyggd.is  og nánari upplýsingar gefur Íris Hauksdóttir, þjónustu- og upplýsingafulltrúi í síma 460 4908.

Mynd/pixabay