Tekið var fyrir erindi frá félögum eldri borgara í Fjallabyggð um rekstrarstyrk fyrir árið 2025 á 858. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar.
Umsóknin barst í júní 2024 en var ekki lögð endanlega fyrir bæjarráð.
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum veitingu rekstrarstyrks fyrir árið 2025 að upphæð kr. 1.000.000 til félaga eldri borgara í Fjallabyggð, þ.e. kr. 500.000 á hvort félag.