Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í síðasta mánuði samkvæmt þinglýstum gögnum.

Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 846 og var upphæð viðskiptanna um 52,0 milljarðar króna þegar miðað er við útgáfudagsetningu.

Þegar janúar 2022 er borinn saman við desember 2021 fækkaði kaupsamningum um 34,7% en velta lækkaði um 38,4%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 36,3% á milli mánaða og velta lækkaði um 37,6%.

AllsSérbýliFjölbýliAtvinnueignirSumarhúsAnnað
Heildarvelta í síðasta mánuði52.03015.11230.1825.073988675
Þar af höfuðborgarsvæðið38.1089.06424.1064.35553547
AllsSérbýliFjölbýliAtvinnueignirSumarhúsAnnað
Kaupsamningar í síðasta mánuði864196547841819
Þar af höfuðborgarsvæðið531784005012

Hægt er að sjá veltu á fasteignamarkaði frá júní 2006 til 22. febrúar 2022 í skjali sem Þjóðskrá gefur út þar sem gögnunum er skipt í flokka eftir landshlutum og tegund húsnæðis.

Hagstofan birtir upplýsingarnar með þeim fyrirvara að ekki er búið að skanna og skrá alla samninga sem heyra til síðasta mánaðar, tölurnar verða því uppfærðar. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar í fasteignagátt Þjóðskrár