Smitum á Norðurlandi fer hratt fjölgandi og hefur það mikil áhrif á starfsemi HSN. Vaxandi fjöldi starfsmanna er frá vinnu vegna Covid eða 67 starfsmenn af 609, sem gerir 11% starfsmanna. Vísbendingar eru um að þetta hlutfall geti hækkað á næstu dögum. Nokkur fjöldi starfsmanna vinnur í vinnusóttkví B.

Staðan er sérstaklega þung á Húsavík og Akureyri og fer versnandi á Sauðárkróki, í Fjallabyggð og á Blönduósi.

Á Húsavík er hópsmit á hjúkrunar- og sjúkradeildum en þar eru sjö skjólstæðingar með virkt Covid smit.

Mikil aðsókn er í PCR sýnatökur á öllu Norðurlandi en í dag eru yfir 1400 sýni á áætlun og 75 hraðpróf.

Fjarvera starfsmanna og mikið álag í sýnatökum valda því að forgangsraða getur þurft þjónustunni. Í heimahjúkrun þarf til að mynda að forgangsraða heimsóknum. Á heilsugæslustöðvum er áhersla lögð á bráðaþjónustu og fyrirséð er að við munum neyðast til að afbóka eitthvað af skráðum tímum. Bólusetningar eru áfram í forgangi og verða áður auglýstir bólusetningadagar óbreyttir.

HSN óskar fólki á bakvarðalista stofnunarinnar. Hægt er að skrá sig hér.

Íbúar á Norðurlandi eru beðnir um að sýna stöðunni skilning.