Í ljósi aðstæðna, fjölda Covid-smita og slæmrar veðurspár, verður fjarkennt í dagskóla Menntaskólans út þessa viku.

Nemendur og kennarar verða heima en mæta til kennslu og náms í fjarkennslustofu samkvæmt stundaskrá. Kennarar setja upp tengil á fjarkennslustofu sem er aðgengilegur fyrir nemendur í hverjum áfanga inni á Moodle. Nemendur skrá sig einnig í vinnutíma að heiman.

Skólinn er opinn ef nemendur vilja koma þangað og læra.