Fréttatilkynning

Fiskidagurinn mikli 19 ára eitt ár í viðbót.

Eins og margir vita þá er Fiskidagurinn mikli 20 ára í ár og undirbúningur var hafin fyrir  afmæli fjölskylduhátíðarinnar sem vera átti 7.-9. ágúst 2020.

Í ljósi aðstæðna hefur stjórn Fiskidagsins mikla ákveðið að fresta afmælishátíðinni um eitt ár.  Saman förum við í gegnum þetta verkefni sem okkur hefur verið rétt upp í hendurnar, verum  áfram einbeitt og hlýðum þríeykinu sem vinnur ásamt sínu fólki afar gott starf. Við skulum muna að tapa aldrei gleðinni.

Við komum sterk inn að ári og þá knúsumst við og njótum samvista við fólkið okkar og gesti.

Verið velkomin á  20 ára afmæli Fiskidagsins mikla 6 .– 8. ágúst 2021.

Styrktaraðilar okkar sem eru vel á annað hundrað fá á næstu dögum bréf frá okkur þar sem við þökkum fyrir frábært samstarf liðinna ára og óskum eftir því að þeir yfirgefi okkur ekki og komi ferskir  að vanda með okkur inn í nýtt afmælisár. 

Með baráttukveðjum frá stjórn Fiskidagsins mikla í Dalvíkurbyggð.


Framkvæmdastjóri Júlíus Júlíusson 897 9748

Mynd: Fiskidagurinn mikli