Rannsóknir Skagfirsku kirkju- og byggðasögurannsóknanna fara nú fram í Hegranesi fjórða árið í röð. Í þetta sinn er hópurinn nokkru minni en undanfarin ár, eða 11 manns. Tilgangur rannsóknanna er að skoða aldur og dreifingu elstu byggðar í Hegranesi og tengsl byggðaþróunar við kirkjusögu svæðisins. Verkefnið er samstarfsverkefni Byggðasafnsins og fornleifarannsóknastöðvarinnar Fiske Center í UMass Boston.

Við rannsóknina í sumar hefur m.a. fundist forn kirkjugarður í landi Utanverðuness. Í fyrra komu fram vísbendingar um mögulegan kirkjugarð við jarðsjármælingar rétt sunnan við garðinn í kringum íbúðarhúsið. Vísbending er um kirkju þar í bréfi frá 14. öld þar sem segir að presturinn á Sjávarborg fái greitt fyrir að syngja messu í Keflavík, Utanverðunesi og á Hellulandi. Aðrar ritheimildir finnast ekki en í túni sunnan bæjarins var áður upphækkun sem kallaðist Kirkjuhóll og sögusagnir um kirkjugarð henni tengdar.

 

Könnunarskurður var tekinn í sléttuðu túni rétt sunnan við meinta kirkju samkvæmt jarðsjármyndinni. Í ljós komu mögulegar leifar veggjar sem hlaðinn hefur verið eftir 1104 og gætu verið leifar bænhússins frá 14. öld. Neðan 1104 gjóskunnar komu svo í ljós samskonar uppfyllingar torflög og fundist hafa í öðrum samtíða kirkjugörðum. Þessi lög hafa verið sett í garðana til að slétta úr misfellum í landslagi og til að auðvelda greftrun í þeim. Í uppfyllingarlaginu sáust svo útlínur einnar grafar. Á um 60cm dýpi fundust svo leifar kistu og í henni beinagrind. Það er því ljóst að þarna hefur verið kirkjugarður á 11. öld sem hefur verið aflagður snemma þótt þarna stæði áfram bænhús a.m.k. fram á 14. öld.

Fylgjast má með rannsókninni á facebook hennar https://www.facebook.com/icelandscass.

 

Frétt: Byggðasafn Skagfirðinga