Grunnskóli Fjallabyggðar afhendir nemendum ritfangapakka að gjöf frá sveitarfélaginu við skólabyrjun haustið 2019. Ætlast er til þess að nemendur í 1.-5.bekk geymi og noti ritföngin í skólanum og fá þau körfu undir þau.
Nemendur í 6.-10.bekk halda sjálf utan um þessi ritföng sjálf. Glatist eða skemmist þessi ritföng þurfa foreldrar að útvega önnur í staðinn. Ritfangapakkinn er svipaður milli árganga og felur í sér skriffæri, stíla-og reikningsbækur, skæri, teygjumöppu, tréliti, reglustikur o.s.frv. eftir þörfum hvers árgangs.
Það sem er ekki í pakkanum þurfa foreldrar að útvega.
Mynd: pixabay