Atvinnuleysi í júlímánuði í Húnaþingi vestra hefur tvöfaldast á milli ára. Á atvinnuleysisskrá í júlí 2018 voru 6 einstaklingar án atvinnu en júlí 2019 voru 12 án atvinnu. Um er að ræða 5 konur og sjö karla. Atvinnuleysi er mest hjá fólki á aldrinum 20 – 30 ára, eða 6 manns.

Ef rýnt er frekar í atvinnuleysistölur Hagstofunnar fyrir Húnaþing vestra má sjá í hvaða starfsgreinum þeir eru.