Í dag, mánudaginn 11. júní kl. 17:00 mun Siglfirðingurinn og landlæknir, Alma D. Möller, skrifa undir samstarfssamning við Fjallabyggð um Heilsueflandi samfélag. Athöfnin fer fram í Tjarnarborg.
1. Gestir boðnir velkomnir.
2. Kynning á Heilsueflandi samfélagi. Alma D. Möller
3. Staðan í Fjallabyggð. Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri
4. Undirskrift samnings. Alma D. Möller og Gunnar I. Birgisson
5. Hollar veitingar
Allir velkomnir.
Frétt og mynd fengin af vef: Fjallabyggðar