Á 630. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar var lagt fram erindi Jakobs Björnssonar fh. Orkusjóðs, dags. 15.11.2019, þar sem fram kemur að Fjallabyggð hlaut ekki styrk vegna uppsetningar hleðslustöðva fyrir rafbíla í Ólafsfirði.

Eitt þeirra markmiða með úthlutun styrkjanna, sem tilgreint var í auglýsingu þeirra, var að fjölga aflmeiri stöðvum en fyrir væru (50kw). Umsóknir um uppsetningu á 150kw stöðvum reyndust mun fleiri en reiknað var með. Niðurstaðan varð því sú að styrkja einungis uppsetningu slíkra stöðva. Ein undantekning er á Skjöldólfsstöðum á Jökuldal en þar er ekki unnt að setja upp svo aflmikla stöð.

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að hefja viðræður við Olís og kannaður vilji fyrirtækisins til þess að setja niður hleðslustöð fyrir rafbíla á þjónustustöð í Ólafsfirði.