Í mörgum skólum á landinu er frábært verkefni sem kallast lestrarömmur og lestrarafar.

Verkefnið er þannig að „ömmur“ og/eða „afar“ koma í skólana og láta börn lesa fyrir sig.

Grunnskóli Húnaþings vestra vill hefja verkefni sem þetta og óskar eftir áhugasömum sem eiga mögulega lausan klukkutíma eða fleiri á viku?

Rétt er að taka fram að þetta þurfa að sjálfsögðu ekki að vera eiginlegar ömmur eða afar.

Þeir sem hafa áhuga á að gerast lestrarömmur eða lestrarafar hjá Grunnskóla Húnaþings vestra hafið samband við Helgu, ritara skólans, í síma 455-2900 eða sendið tölvupóst á grunnskoli@hunathing.is

Sjá einnig vefsíðu Grunnskólans