Á 907. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar kom fram að tilboð í endurbætur á tæknirými, meðal annars sundlaugarlögnum, raflögnum og öðrum tilheyrandi þáttum, voru opnuð fimmtudaginn 29. janúar.
Eitt tilboð barst í verkið, frá Finni Inga Sölvasyni, að fjárhæð 81.695.344 krónur. Kostnaðaráætlun framkvæmdarinnar nam 79.061.813 krónum og er tilboðið því um þrjú prósent yfir áætlun.
Bæjarráð samþykkti að taka tilboði Finns Inga Sölvasonar og fól framkvæmdasviði að ganga frá verksamningi um framkvæmdina. Jafnframt kom fram að verkið rúmist innan fjárfestingaáætlunar sveitarfélagsins.



