Áhugaverður fyrirlestur fer fram í Tjarnarborg þar sem fjallað verður um félagslega einangrun og leiðir til að sporna gegn henni.

Fyrirlesturinn veður haldinn í Tjarnarborg 27. ágúst kl. 16:00.

Líney Úlfarsdóttir sálfræðingur, sem sérhæfir sig í geðheilbrigði aldraðra, og Svavar Knútur Kristinsson heimspekingur og forvarnarfulltrúi, deila reynslu sinni og innsýn í málefnið. Þau hafa síðustu mánuði ferðast víða um landið í samstarfi við vitundarvakninguna Tölum saman á vegum félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Markmiðið er að vekja athygli á áhrifum félagslegrar einangrunar og veita hagnýt ráð um hvernig samfélagið geti lagt sitt af mörkum.

Félagsleg einangrun er talin alvarlegur lýðheilsuvandi sem getur haft áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu. Með aukinni vitund og virkri þátttöku samfélagsins má bæta lífsgæði og efla tengsl milli fólks á öllum aldri.

Viðburðurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis. Sérstaklega er hvatt til þátttöku einstaklinga 60 ára og eldri, fjölskyldna þeirra, vina og aðstandenda.

Mynd/af vefsíðu Fjallabyggðar