Mikil snjókoma var í Ólafsfirði í gær og snjóaði samfellt. Í ljósi aðstæðna var ákveðið að fresta Fjarðargöngunni til sunnudags og mun hún þá fara fram í miðbæ Ólafsfjarðar.
Dagskrá viðburðarins verður óbreytt að öðru leyti en því að hún færist yfir á sunnudag. Jafnframt verður skráning opin í einn sólarhring til viðbótar.
Mynd: af facebooksíðu Fjarðargöngunnar



