Fjarvinnusetur í Hrísey var opnað að nýju í byrjun mánaðarins eftir gagngerar endurbætur. Setrið er í húsinu Hlein þar sem einnig er skrifstofa Akureyrarbæjar og mötuneyti Hríseyjarskóla.
Fagfólk úr hinum ýmsum greinum hefur nýtt sér þessa aðstöðu sem er leigð út gegn vægu gjaldi en námsmenn geta notað hana endurgjaldslaust. Þarna hefur til að mynda verið unnið að verkefnum á sviði fjármála, lögfræði og forritunar, fólk hefur sinnt þar símsvörun og ritstörfum, svo eitthvað sé nefnt.

Unnið er í opnu rými í fjarvinnusetrinu og þar eru fjögur skrifborð með skjá, lyklaborði og mús. Góðir skrifstofustólar eru við hvert borð og borðin eru upphækkanleg. Í fjarvinnusetrinu er einnig fundarsalur með aðgangi að fullbúnu eldhúsi, en salinn er hægt að leigja undir fundi og minni ráðstefnur. Þó ber að hafa í huga að Hríseyjarskóli er með salinn til umráða fyrir mötuneyti skólans frá kl. 8 til 14.30 mánudaga til fimmtudaga yfir skólaárið.
Nú er auglýst eftir hugmyndum að nafni fyrir fjarvinnusetrið. Hvað dettur þér í hug að setrið ætti að heita? Smelltu hér og sendu inn hugmynd.
Tilkynnt verður um val á nafni laugardagskvöldið 12. júlí á Hríseyjarhátíðinni.
Á þessari síðu er að finna nánari upplýsingar og myndir af aðstöðunni.