Hafnarstjóri lagði fram og fór yfir tölur um landaðan afla á 139. fundi hafnarstjórnar Fjallabyggðar með samanburði við fyrra ár.

Á Siglufirði höfðu þann 6. september 8977 tonn borist á land í 956 löndunum, samtímatölur fyrra árs eru 8289 tonn í 1067 löndunum.

Á Ólafsfirði höfðu 134 tonn borist á land í 121 löndunum, samtímatölur fyrra árs eru 160 tonn í 142 löndunum.