Söngskemmtun Karlakórs Fjallabyggðar ásamt Ástarpungunum.

Á morgun, laugardaginn 4. maí ætlar Karlakór Fjallabyggðar að blása til söngskemmtunar og hefur fengið til liðs við sig ballhljómsveitina Ástarpungana.

Efnisskráin verður fjölbreytt þar sem farið verður um víðan völl: Hefðbundin kórtónlist, íslensk dægurlög, rokklög ásamt frumsömdu efni!

Skemmtunin verður í Tjarnarborg á Ólafsfirði og hefst klukkan 20:00. Miðaverð er 4.500 kr.

Facebook viðburður hér