Fjöldi manns lagði leið sína í kirkjugarða Siglufjarðar á jóladag til að kveikja á kert­um og votta hinum látnu virðingu sína.

Það er jóla­hefð hjá mörg­um að fara með greniskreytingar og kerti að leiðum ástvina sinna á jólunum og mæta heilu stórfjölskyldurnar saman.

Gott veður var til útivistar og logaði skært á kertunum jafnt í gamla sem og nýja kirkjugarðinum og var hátíðlegt yfir að líta þar sem ljósakrossar lýsa upp skammdegið.

 

Hátíðlegt var yfir að líta og logaði víða á kertum

 

Búið að skreyta með grenigrein og kveikja á kerti

 

Heilu stórfjölskyldurnar mæta saman í garðinn

 

Gamli kirkjugarðurinn hátíðlegur

 

Myndir: Kristín Sigurjónsdóttir