Þjóðskrá Íslands hefur gefið út Íbúafjölda eftir sveitarfélögum 1. mars 2023.

Þar má sjá að íbúum í Fjallabyggð hefur fjölgað um 11 frá 1. desember 2022, en þá voru 1.977 með lögheimili þar. Eru þá íbúar Fjallabyggðar þann 1. mars 2023 1.988 manns og mælist hækkunin 0,6 %.

Þann 1. desember 2019 voru íbúar Fjallabyggðar 2.007 að tölu.

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 1070 íbúa á tímabilinu frá 1. desember 2022 til 1. mars 2023 og íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 137 íbúa.  Íbúum í Hafnarfjarðarkaupstað hefur fjölgað um 170 íbúa og í Garðabæ fjölgaði um 123 íbúa.  Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 55 íbúa.

Fjölgar mest í Reykjanesbæ utan höfuðborgarsvæðisins

Þegar horft er til heildarfjölda breytinga á íbúafjölda utan höfuðborgarsvæðisins þá hefur íbúum í Reykjanesbæ fjölgað mest frá 1. desember 2022 eða um 400 íbúa. Næst mest fjölgaði íbúum í Sveitarfélaginu Árborg eða um 109 íbúa og íbúum í Borgarbyggð fjölgaði um 103 á sama tímabili. 

Hlutfallslega fjölgaði íbúum mest í Kaldrananeshrepp eða um 6,2% og næst mest í Skorradalshreppi eða 5,2% miðað við tölur 1. desember 2022 til 1. mars 2023.  Af 64 núverandi sveitarfélögum þá fækkaði íbúum í 15 sveitarfélögum en fjölgaði eða stóð í stað í 49 sveitarfélögum.

Fækkar á Vestfjörðum

Íbúum fjölgar í öllum landshlutum nema á Vestfjörðum og Norðurlandi Vestra. Á Vestfjörðum fækkar um 0,1% eða 5 íbúa en á Norðurlandi Vestra er hlutfallsleg fækkun nánast engin en þar fækkar um 1 íbúa. Hlutfallslega mest hefur fjölgunin verið á Suðurnesjum eða um 1,7% sem er fjölgun um 538 íbúa. Samtals fjölgar íbúum á landinu öllu um 1581 frá 1. desember 2022 til 1. mars 2023 sem er um 0,6%.

Hér er skrá yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum í byrjun mánaðarins og samanburð við íbúatölur frá 1. desember fyrir árin 2019-2022. Þessar tölur eru byggðar á skráningu Þjóðskrár á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi.