Frumvarp mennta- og menningarmálaráðherra, Lilju Alfreðsdóttur, um stuðning við einkarekna fjölmiðla hefur verið lagt fram á Alþingi. Ýmsir hafa tjáð sig um frumvarpið, þær fjárhæðir sem þar eru kynntar, og hvaða fjölmiðlar hafa gagn af því og hverjir ekki. Þetta mál verður tekið fyrir á tveggja daga ráðstefnu við Háskólann á Akureyri um næstu helgi, 8 og 9 febrúar.
Meðal þeirra sem fjalla um málið eru Þorgeir Ólafsson frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu en hann er einn af þeim sem hefur komið hvað mest við sögu við vinnslu frumvarpsins. Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, mun einnig taka þátt í umræðum um rekstrarumhverfi fjölmiðla á Íslandi og gera samanburð á íslensku fjölmiðlaumhverfi og starfskilyrði fjölmiðla í hinum ríkjum Norðurlandanna.
Auk þeirra munu talsmenn fjölmiðla ræða stöðu og rekstrarskilyrði fjölmiðla á landsbyggðinni og fjallað verður um gæði, innihald og framtíð fjölmiðla utan höfuðborgarsvæðisins.
Fundurinn er sérstaklega ætlaður fólki sem starfar við fjölmiðla en allir áhugasamir eru velkomnir. Skráning fer fram í gegnum Símenntun Háskólans á Akureyri. Þar má einning finna dagskrá.
Mynd: UNAK