Út er komið lagið Eyes með GREYSKIES.

Lagið verður leikið í þættinum Tíu Dropar sem er á dagskrá FM Trölla á sunnudögum kl. 13 – 15.

GREYSKIES er listamannsnafn Steinars Baldurssonar sem er 25 ára lagahöfundur og pródúsent.

GREYSKIES gerði nýlega útgáfusamning við Öldu Music og hefur nú þegar gefið út lögin On The Run, Numb, Hurts So Bad og Rhoads af 11 laga plötu sem kemur út seinna á þessu ári. En platan er unnin í samstarfi við pródúsentinn Pálma Ragnar Ásgeirsson.


Eyes á Spotify