Í dag verður Þátturinn Tíu Dropar sendur út frá Kanarí, kl 13.00 – 15.00 GMT.

“Við verðum í sambandi við tónlistarmenn sem voru að senda frá sér nýtt efni”.

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Magnea Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári Helgason sem stjórna þættinum og að þessu sinni verður útsendingin frá Syðri-Glaumbæ, en svo kallast hellir þeirra hjóna á Gran Canaria.

Þau spjalla um allt mögulegt og ómögulegt milli himins og jarðar, fara yfir fréttir vikunnar á trolli.is og leika lög úr ýmsum áttum.

Í dag verða leikin ný lög víða að og uppskrift vikunnar verður eins og ávalt á sínum stað.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is.

Á síðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is