Húlladúllan kynnir með stolti skemmtilegt verkefni sem hún stendur fyrir í Eyþingi.

Verkefnið, sem ber heitið “Fjölskyldusirkushelgar í Eyþingi” er unnið undir formerkjum heilsueflandi nálgunnar. Dagskráin er sérstaklega sniðin að því að fjölskyldan og samfélagið geti öll tekið þátt og notið helgarinnar saman, burtséð frá aldri og stærð. Helgarnar verða fjórar talsins og fara fyrstu þrjár helgarnar fram í maí. Þær verða staðsettar í Fjallabyggð, (4. -5. maí),  í Skútustaðahrepp (11. -12. maí) og í Eyjafjarðarsveit (25. -26. maí).

Fjölskyldusirkushelgin felur í sér tveggja daga kennslu þar sem þáttakendur fá að prófa hinar ýmsu sirkuslistir og og sirkusáhöld undir leiðsögn tveggja frábærra kennara. Húlladúllan og sirkuslistakonan Unnur Máney leiðir kennsluna og með henni er Erna Héðins, kennari og markþjálfi. Kennt er í sex klukkutíma laugardag og sunnudag með klukkutíma hádegishléi hvorn dag.

Markmið kennslunnar er að þáttakendur geti eftir að námskeiðinu lýkur nýtt sér það sem þau lærðu til að leika og njóta. Þáttakendur fá kennslugögn sem innihalda minnislista yfir þau trix sem kennd voru, leiðbeiningar um það hvaða áhöld megi nota í stað sérhæfðra sirkusáhalda og leiðbeiningar um það hvar á vefnum sé að finna góð kennslumyndbönd fyrir þau sem vilja halda áfram að bæta við þá kunnáttu sem þau öðluðust um helgina.

Hver smiðja getur tekið á móti 50 þáttakendum frá grunnskólaaldri og upp úr. Þáttökukostnaði er haldið í lágmarki en aðeins er rukkað 2.000 króna skráningargjald fyrir hvern þátttakanda.  Þetta er mögulegt þökk sé stuðningi Norðurorku og Uppbyggingarsjóðs Norðurlands eystra ásamt stuðningi þeirra sveitarfélaga sem taka þátt, í formi afnota af aðstöðu.

Skráning fer fram á vefsíðu Húlladúllunnar www.hulladullan.is og þar er að finna allar frekari upplýsingar.

 

Sjá einnig: hulladullan.is