Fjör í Neukirchen hjá skíðafólki úr Fjallabyggð - Myndir

Stór hópur skíðaiðkenda frá Skíðafélögunum í Fjallabyggð dvelur þessa dagana í Neukirchen þar sem æfingar í alpagreinum standa yfir við afar góðar aðstæður.

Alls telur hópurinn um 40 manns, þar af um 20 iðkendur auk þjálfara, fararstjóra og góðs hóps aðstandenda sem fylgir liðinu út. Ferðin er liður í markvissri uppbyggingu starfseminnar og gefur iðkendum tækifæri til að æfa við aðstæður sem eru oft vandfundnar hér heima.

Fjör í Neukirchen hjá skíðafólki úr Fjallabyggð - Myndir

Á Facebook-síðu Frétta- og fræðslusíðu UÍF kemur fram að aðstæður í Neukirchen séu með því besta sem hægt er að óska sér. Talsvert er af púðursnjó á svæðinu og stemningin innan hópsins afar góð. Æfingarnar ganga vel og greinilegt að bæði iðkendur og fylgdarlið njóta dvalarinnar til fulls.

Fjör í Neukirchen hjá skíðafólki úr Fjallabyggð - Myndir

Myndir hér að ofan tók Gurrý Anna Ingvardóttir / Frétta- og fræðslusíðu UÍF.

Uppfært: 14. janúar, kl. 15:54

Myndirnar hér að neðan tók Salóme Rut Kjartansdóttir / Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg

Fjör í Neukirchen hjá skíðafólki úr Fjallabyggð - Myndir