Breyting á reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 830/2022, hefur tekið gildi og opnað hefur verið fyrir skráningu á Ísland.is. Með reglugerðarbreytingunni, sem Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði þann 20. júní síðastliðinn, verður rekstur veitingastaða skráningarskyldur í stað þess að gerð sé krafa um starfsleyfi á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Þannig er málsmeðferðartími stjórnvalda styttur umtalsvert.

Tillögur að starfsleyfi á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir eru auglýstar til umsagnar í fjórar vikur og í kjölfarið hafa heilbrigðisnefndir fjögurra vikna frest til að taka ákvörðun og skila greinargerð þar sem tekin er afstaða til athugasemda sem berast. Þessar kröfur eru ekki fyrir hendi þegar atvinnustarfsemi er skráningarskyld og er þannig málsmeðferðartími aðila sem eru að hefja veitingarekstur hjá stjórnvöldum styttur umtalsvert með þeirri breytingu sem nú verður. Ekki er þó slakað á kröfum um heilbrigði, umhverfi eða öryggi almennings, enda gilda að öðru leyti sömu lögbundnu kröfur og áður.

Samræmd starfsskilyrði fyrir veitingastaði hafa verið uppfærð og er nú hægt að sækja um skráningu þeirrar starfsemi í skráningargátt á island.is, Skráningarskyld starfsemi | Ísland.is þar sem hlekkur fyrir almenna skráningu er valin. Stjórnvöld hafa hraðað innleiðingu þessara breytinga eins og kostur er.

Fyrr í mánuðinum, þann 6. júní, gerði ráðherra jafnframt breytingu á reglugerð um hollustuhætti, nr. 903/2024 og bætti inn ákvæði um að breyting á handhafa starfsleyfis krefjist ekki auglýsingar ef engar breytingar hafa orðið á starfsleyfisskilyrðum.

Fyrirhugaðar eru enn frekari breytingar á regluverki þannig að fleiri flokkar atvinnurekstrar verði skráningarskyldir í stað þess að gerð sé krafa um starfsleyfi. Þá stendur yfir vinna við endurskoðun fyrirkomulags eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur vinnur hörðum höndum að því að vinda ofan af íþyngjandi regluverki sem lagt hefur verið á fólk og fyrirtæki á undanförnum árum. Þessar einföldu reglugerðarbreytingar eru það sem við getum gert strax í mínu ráðuneyti til þess að létta á stjórnsýslu- og reglubyrði fyrirtækja í veitingarekstri. Með þessu er það mín von að það verði auðveldara og fljótlegra að opna veitingastaði á Íslandi. Unnið er að stærri breytingum á fyrirkomulagi eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum, en jafnframt er ljóst að stjórnvöld þurfa að tryggja skilvirka framkvæmd reglna um skráningarskyldan atvinnurekstur og huga sérstaklega að samspili þeirra reglna og lagabálka sem um starfsemina gilda. Stjórnvöld mega aldrei reisa stjórnsýslulegar hindranir að ósekju. Verkefni okkar er að setja skýrar og fyrirsjáanlegar reglur og tryggja skilvirka og snurðulausa framkvæmd þeirra. Þannig verjum við atvinnufrelsið og ýtum undir vöxt og verðmætasköpun.“

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 830/2022 um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir

Mynd/pixabay