Helgi Jóhannsson skipar 1. sæti H-Listans í Fjallabyggð.

“Ég er giftur Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur, þingmanni, og eigum við þrjú börn, Tímon Davíð 39 ára, Klöru Mist 34 ára og Jódísi Jönu 23 ára. Við búum að Hlíðarvegi 71 í Ólafsfirði. Ég er 57 ára og hef búið alla mína ævi í firðinum fagra fyrir utan 9 mánuði í Kópavogi. Ég starfaði hjá Sparisjóði Ólafsfjarðar frá árinu 1983 og síðar Arion banka í Fjallabyggð þegar þessar tvær fjármálastofnanir sameinuðust.

Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á bæjarmálum og þá helst umhverfis- og skipulags málum. Á yfirstandandi kjörtímabili hef ég verið nefndarmaður í skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar. Á þeim vettvangi hef ég verið duglegur að koma með tillögur og ábendingar á kjörtímabilinu þrátt fyrir að vera einn í minnihluta, enda á það ekki að skipta máli. Ég hef setið sem bæjarfulltrúi frá byrjun árs 2021 og varabæjarfulltrúi fram að þeim tíma.

Ég hef alltaf þurft að hafa eitthvað fyrir stafni, það getur verið stutt á milli ofvirkni og að vera duglegur. En ég hef komið að uppbyggingu á tveimur veitingastöðum og gistihúsi, Höllinni, Kaffi Klöru og Gistihúsi Jóa í hjáverkum. Mér finnst mikilvægt að maður reyni að láta gott af sér leiða í því samfélagi sem maður býr, mér finnst ég hafa reynt að gera það. Eitt verkefni sem ég ákvað að fara í var gera upp gamlan trébát, Freymund ÓF sem afi minn og frændi áttu. Búin að læra heilmikið á því stússi. Hann verður vonandi fyrsti vísir af sögu smábátaútgerðar hér í Ólafsfirði og stendur nú til sýnis í miðbænum á Ólafsfirði og er töluvert aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Ég er í stjórn Fjallasala ses. en það félag stendur að Pálshúsi í Ólafsfirði en þar hefur verið komið upp nokkrum áhugaverðum sýningum sem tengjast Ólafsfirði. Stór hluti framkvæmda þar hefur verið unninn í sjálfboðavinnu. Jólin eru minn tími og hef ég komið að jólakvöldinu mikla í Ólafsfirði s.l. ár ásamt fleira góðu fólki. Ég sat í stjórn MTR frá stofnun hans 2010 og fram til ársins 2017 og gegndi formennsku í þrjú ár.

Helstu áhugamálin eru umhverfismál, ganga á fjöll sumar sem vetur, gönguskíði, fjallaskíði og almenn útivera. Fjallabyggð og Tröllaskaginn er einstakur staður til að vera á. Einnig er knattspyrna mér ofarlega í huga, í ensku knattspyrnunni er Liverpool liðið.

Og áfram lifir draumurinn að koma upp kláfferju uppá Múlakollu, stórt verkefni og spennandi. Náði þeim áfanga að koma kláfnum inná aðalskipulag fyrir Fjallabyggð, fyrsta skrefið í langri göngu. Það líður ekki sá dagur að ég ekki fái einhverja hugmynd um hvað væri hægt að gera í Fjallabyggð, að Fjallabyggð sé betri í dag en í gær.

Að bjóða sig fram í sveitarstjórn krefst töluverðrar vinnu og tíma. Ég er tilbúinn að gefa af mér þann tíma því áhuginn á því að gera eitthvað gott fyrir samfélagið okkar er til staðar. Þess vegna býð ég mig fram fyrir þessar sveitarstjórnakosningar, 14. maí 2022.

Setjum X við H!
Helgi Jóhannsson
H-Listinn—fyrir heildina.”